comedy

Perlur og Svín

Þau Finnbogi og Lísa eiga sér háleit markmið; þau langar að vera rík eins fljótt og auðið er, svo þau geti loksins tekið saman föggur sínar og flogið til heitari landa. Sem betur fer er finnbogi duglegur maður, handlaginn og metnaðargjarn. Hvort sem það er kynlífsleikföng eða rússneskir bílar – í viðskiptum er honum ekkert óviðkomandi. Lísa styður mann sinn heilshugar, en hefur jafnframt áhyggjur af því að hann leggi of hart að sér. Hér segir af því þegar parið lætur pranga inn á sig eitt stykki bakaríi, sem skyndilega tekur upp á því að ganga vel sakir klókindalegra undirboða og uppátækja eigendanna. Samkeppnisaðilum sárnar þetta, einkum Mörtu, eiganda stórrar brauðgerðar og hún ákveður að sýna hjúunum í eitt skipti fyrir öll hver ræður á sætabrauðsmarkaðnum. En með bjartsýni og baráttuþrek að vopni bregst parið til varnar með kostulegum afleiðingum…